Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Börn

25. september 2006 klukkan 05:29
Börn, fór í bíó á myndina Börn. Það er góð mynd!
Tónlistin í myndinni er frábær.
ég mæli með myndinni.

blogga kanski smá?

29. ágúst 2006 klukkan 23:09
Já..það fer að verða ansi langt síðan ég hef sest niður með fartölvuna góðu og bloggað, ja þó það væru nú ekki nema bara fáeinar línur!

Það er vafalaust eitthvað sem á daga mína hefur drifið síðan þá..misáhugavert samt sem áður og þá sérstaklega uppá síðkastið.

Verslunarmannahelgin var hin mesta skemmtun en á föstudeginum fór ég með Lilju, Maríönnu, og Sigga í Ásbyrgi á Sigurrós sem var alveg frábært. Ég og Lilja vorum myndaðar í bak og fyrir af einhverjum tískumongúlum fyrir eitthvað breskt blað sem var hinn mesti brandari. Í Ásbyrgi hitti ég svo Þórgný, Robba og alla gommuna og við skemmtum okkur eins og best var á kosið á tjaldstæðinu Lundi.

Á Laugardeginum var lagt tiltölulega snemma af stað til Akureyrar en þar gistum við Lilja hjá henni Önnu Guðrúnu elskunni. það var mikið djamm bæði kvöldin, þ.e.a.s. föstudags og laugardags-kvold. Svo á sunnudaginn vaknaði ég upp við illan draum og áttaði mig á að ég var þunn, ógeðsleg, einhverstaðar í helvíti og ekki með far á Egilsstaði...OG átti að mæta í vinnuna kl. 4 sama dag. VEI

Mér tókst loksins eftir margar vooonlausar tilraunir og mörg "beil", að redda mér fari heim og síðan ekki söguna meir fyrr en ég var vakin fyrir framan Kaffi Nilsen klukkan 5, klukkutíma of seint og drallaði mér í vinnuna.

Um þar síðustu helgi komu Anna Guðrún og Hulda í heimsókn og við fórum á mjög líflegt og skemmtilegt hetjudjamm þar sem margt gerðist og margur maðurinn hittist og skemmti sér saman. Meðal annars varð þar á vegi mínum Portúgölsk kona á fimtugsaldri sem sendi mig heim með hvorki meira né minna en símanúmerið hjá sér, ýmsar persónulegar upplýsingar og boð um heimsókn til sín í húsakynni hennar í Lisboa í Portúgal. GÚD!

Gleymdi ég líka að minnast á dúndur staffapartýið sem haldið var fyrir nokkru, en þar komu saman helstu djammarar í hópi starfsfólks Kaffi Nilsens, á mánudagskvoldi nota bene, og slettu heldur betur úr klaufunum. Við Þórunn vorum í broddi fylkingar hvað skemmtanalíf og dólgslæti varðar og brutum fylgihluti, eyðilögðum tré og slitum niður eignir stofnanna í bænum, frömdum rán og girtum loks þýfinu í kringum vinnustaðinn okkar, og neyddum á sama tíma óbreyttan samstarfsmann til samvinnu. Þetta kvöld hafði heldur betur afleiðingar sem ég ætla alls ekki að fara nánar útí, enda vita þeir sem hlut eiga í máli, allt sem vert er að vita, og einnig vegna eigin biturleika og reiði..ha, RAGGA! hehe
...en semsagt, frábært staffapartý þar á ferð!

...Það er ekki margt annað sem ég get sagt frá að þessu sinni enda er ég alveg að fara að hlaupa á eitthvað úr leiðindum, þar sem þetta bæjarfélag er með eindæmum leiðinlegt og ég hef EKKERT að gera hér á meðan allir vinirnir eru í skóla, útskriftarferðum eða þá bara á Akureyri. Ég get sannlega ekki beðið eftir að 14. september renni loks upp svo ég geti komið mér norður og hafið líf að nýju eftir að hafa ekki gert neitt nema vinna og sitja, sofa og bora í nefið siðustu vikur.

...Eeeen við höfum því miður eki tíma fyrir þetta spjall mikið legur, veriðið sæl.

ps. Juan Enrico Martinez, skiptineminn okkar fer alveg að koma...svo ég sé fram á leikifélaga í mínu innantóma lífi djöfulsins! hehe

Lunga..

25. júlí 2006 klukkan 19:21
LUNGA var um helgina, það var áhugavert, gaman og mjög flott! Ég gisti í tjaldi báðar nætur...Á föstudeginum voru litlir tónleikar með ýmsu nýju, ungu og bara allskonar tónlistarfólki...misgott, en þó fólst skemmtun í að horfa á allt saman! Ég staldraði þó ekki við alla tónleikana heldur eyddi seinni helmingnum uppá tjaldstæði og í skemmtilegu húsbila teiti hjá Stebba Jök og co. Svo í framhaldi af þessu var Cuver að DJ-ast í Herðubreið sem var vangefið gaman...allavega hjá okkur Lilju! Svo eftir það var bara dottið talsvert meira í það á tjaldstæðinu þar sem mikið af leiðinlegu fólki ásamt Öldu frá Seyðisfirði voru með skemmtiatriði! ..bahh! Síðan þegar stemmingin var endanlega gengin úr böndunum og oll skemmtun löngu farin til helvítis  var klukkan að ganga 8 og ég ákvað að nenna ekki að standa í  þessu lengur og fór að sofa!
Daginn eftir var vaknað eldhresst klukkan rúmlega 10 (2 tímum síðar) og ég og Þórgnýr fórum í innkaupaferð í Samkaup! Síðan get ég ekki gert betur en að segjast hafa setið í stól á tjaldstæðinu þangað til klukkan rúmlega 5 þegar föruneytið lagði af stað á frábæra tónleika! Ég náði reyndar ekki nema rétt helmingnum af þessum tónleikum vegna mikilla anna og smá babbs sem kom upp í bátnum! En það sem ég sá var alveg vangefið flott og þar standa tvímælalaust uppúr hljðomsveitirnar Ghostigital og Benny Crespo's Gang...Ampop var líka alger snilld!
Eftir þetta allt saman tók við tjaldstæðadjamm og partý hjá Viktori og Gumma þar sem Robbi skemmti sér frábærlega! Og í framhaldi af því hitti ég Örnu Mekkin í fyrsta skipti í eitt ár!...sem var mjög undarlegt og algerlega allt öðruvísi en ég hélt það yrði....en samt var frábært að fá að smá fallega smettið á elskunni!!!
Jæja...svo var haldið á leiðinlegasta ball í sögunni með Todmobile þar sem ég staldraði stutt við en kaus frekar að fara á tröpputrúnó kínverskar heimspekipælingar með Magga fyrir utan. Svo var það bara pylsa og kók með Gunna og Adda ásamt fullt af leiðinlegum hálvitum sem komu víðsvegar að, og svo beint uppá tjaldstæði þar sem biðu okkar tveir ónefndir steindauðir í tjaldstól útá miðju túni!
Daginn eftir var það bara tiltekt, sjoppumatur og blesskoss!
Þetta var hin fínasta helgi...allavega skemmti ég mér helvíti vel!
Takk fyrir mig...sjáumst með sama hugarfar um verslunarmannahelgina í Ásbyrgi!
Tchau!

..lalalala

18. júlí 2006 klukkan 17:12
Já lífið gengur sinn vanagang...ég er byrjuð að vinna á fullu var að vinna frá 12-01 alla helgina...sweet!..reyndar er þetta ágætis vinna, ég er mjög ánægð þarna...ALLIR AÐ KÍKJA Í KAFFI Á NILSEN!
Svo var ég eimmitt að fá þær fréttir að ég er í fríi um LUNGA helgina OG um Verzló....það eru bestu fréttir sem ég hef fengið lengi! Svo það er margt á döfinni hjá mér...Það er að sjálfsögðu svaaakalegt djamm á LUNGA næstuhelgi..svo helgina eftir það og reyndar heil vika á Ólafsvöku í Færeyjum! OG svo tekur við bein leið á Akureyri á brjálað verslunarmannahelgar partý! Hljómar þetta vel eða vel?
Svo er maður lika loksins komin með íbúð fyrir næsta vetur og það allt klappað og klárt...svo ég er bara talsvert sátt við mitt þessa dagana!

En...nú kveð ég að þessu sinni....

Birna.

Nýtt líf - Nýtt blogg..

11. júlí 2006 klukkan 17:15
Jæja kæru vinir, ég er komin heim!¨
Þetta er allt saman stÓr furðulegt, skrýtið, gaman, einkennilegt, leiðinlegt, ógnvekjandi og undarlegt á sama tíma!
Það er óneitanlega mjög gaman ad hitta alla aftur, suma meira en aðra...en það er bara eins og gengur.
Nú tekur einfaldleiki hversdagsleikans við á ný eftir árs frí...verð að viðurkenna að litla hjartað í mér er ekki alveg óttalaust gagnvart því!..en þetta fer vel!

Ég er alls ekki búin ad hitta alla vini mína, ekki nema rétt brot reyndar...en það er í vinnslu!

Það er skrýtið að sjá hversu lítið hefur breyst í fari fólks og í fréttum á Íslandi... þó að ég verði að viðurkenna ad Egilsstaðabær hefur heldur betur stækkað og tekið stakkarskiptum...til hins betra vil ég meina...(fyrir utan þessa skÖmm með ballhúsnæði bæjarins...ég á ekki til orð!)

Jæja...ég ætla ad ljúka þessu fyrsta bloggi mínu á nýrri síðu og fá mér að snarla með henni móður minni.

Sjáumst...á röltinu?

Birna Pétursdóttir...aftursnúin úr frumskógunum!